Isolated Word Recognition for Icelandic: A Machine Learning Investigation into Word Modelling
Alex Murphy · Skemman · 2015
Þróun tækni gegnir sífellt mikilvægara hlutverki í lífi okkar allra og mikil aukning er á því að nota þessa tækni til þess að hafa samskipti við aðra. Miklar breytingar hafa orðið á því hvernig við notum tækni, en áður fyrr var handvirkur innsláttur algengari hjá notendum, en nú er mikið meira um að tækni sé stjórnað með töluðu máli. Þetta getur valdið vandræðum hjá málhöfum smærri tungumála, en þeir gætu átt í erfiðleikum með að þróa sams konar tækni í takt við þjóðir á heimsmælikvarða. Mikilvægt er að eiga kost á að nota sitt eigið tungumál við notkun nýrra tækja í stað þess að neyðast til að nota alþjóðlegt samskiptamál. Þessi ritgerð hefur það að markmiði að kanna hvort hægt sé að búa til einstaklingsbundið stakorðagreiningarkerfi sem er þjálfað á örfáum þjálfunardæmum. Athyglisvert er að benda á að mörg þeirra dæma eru beygingarmyndir tiltekins flettiorðs og eru þar af leiðandi af mjög svipaðri gerð. Gert er ráð fyrir því að einhvers konar talstjórnuð reiknivél muni nýta svona kerfi. Mismunandi aðferðir í vélanámi eru kannaðar í því skyni til að ákvarða hversu mikla nákvæmni þessar aðferðir bjóða upp á þegar orðaforðinn samanstendur af orðum sem eru mjög svipuð að gerð. Sýnt verður fram á að einfaldar framkvæmdir tiltölulega flókinna vélanámsreiknirita, eða hulinna Markov-líkana og gervitauganeta, geti spáð fyrir réttri flokkun nýrra orða upp að meira en 92% nákvæmni. Þessar niðurstöður sýna að frekari rannsókn hefur að geyma mjög áhugaverða framtíðarmöguleika og gæti hugsanlega verið undirstaðan að mörgum raddstýrðum notendaviðmótum sem eru nú þegar til staðar í mörgum tækjum og að notkun þess mun eflaust fjölga mjög mikið í framtíðinni.